





þar sem litir og fagmennska mætast
Fyrirtak málningarþjónusta ehf. hefur þjónað fyrirtækjum, stofnunum, húsfélögum og heimilum til margra ára. Fyrirtækið tekur að sér öll helstu verkefni sem koma að viðhaldi og breytingum á fasteignum, jafnt að innan sem utan.
Ámundi S. Tómasson málarameistari er framkvæmda- og verkefnastjóri hjá Fyrirtak málningarþjónustu ehf. Ámundi hefur rekið fyrirtækið með góðum árangri í mörg ár, enda er hann með mikla reynslu í málun og viðhaldi húsa.
Fyrirtak hefur á að skipa einvala liði málara, múrara og smiða, með áratuga reynslu, sem leggja metnað sinn í fagmennsku, snyrtimennsku og áreiðanleika.
Fyrirtak getur því leyst öll helstu verkefni sem koma að viðhaldi húsa.
Málarar hjá Fyrirtak málningarþjónustu eru allir með mikla og góða reynslu við málningarvinnu jafnt við útimálun sem og innimálun. Eingöngu er unnið upp úr góðum málningarkerfum og farið eftir þeim kerfum sem hafa reynst best við íslenska veðráttu.



Hjá Fyrirtak starfa reyndir iðnaðarmenn sem leggja metnað sinn í fagmennsku, snyrtimennsku og áreiðanleika. Við notum eingöngu bestu efni sem reynsla er komin á fyrir íslenskan markað og standast ýtrustu gæðakröfur.
Málararnir hjá Fyrirtak hafa allir mikla og góða reynslu við málningarvinnu jafnt við
útimálun sem og innimálun.
Eingöngu er unnið upp úr góðum málningarkerfum og farið eftir þeim kerfum
sem hafa reynst best við íslenska veðráttu.
Múrararnir hjá Fyrirtak hafa mikla reynslu á múrvinnu, bæði utanhús og innanhús.
Múrvinna krefst mikillar kunnáttu og nákvæmni og hafa múrarar hjá Fyrirtak það sem til þarf.
Við tökum að okkur allt almennt viðhald á fasteignum eins og td. gluggaviðgerðir og glerísetningar. Fúna glugga þarf að laga áður en þeir eru málaðir. Það er gert með því að saga fúa í burt og setja nýtt timbur í staðinn.
Gluggaviðgerðir og glerísetning er mikil nákvæmnisvinna og kallar á rétt handbrögð. Við bjóðum uppá þessa þjónustu og getum líka leiðbeint og aðstoðað.
Málning er oftar en ekki eina vörnin fyrir veðri og vindum. Málning á bæði að verja og fegra. Utanhúss veðrast fletir hratt vegna áhrifa sólar, veðurs og vinds.
Með reglulegu viðhaldi er hægt að verja fasteignina og koma í veg fyrir dýrar framkvæmdir eins og viðgerðir á gluggum, steini og þaki. Mikilvægt er passa uppá tréverk því gluggar og annað tréverk getur fúnað hratt ef ekki er málað reglulega.
Mikilvægt er að nota efni sem hafa reynst vel fyrir íslenska veðráttu.
Hér getur þú skoðað fyrir og eftir myndir af nokkrum af þeim fjöldamörgu verkefnum sem við höfum unnið.
Dragðu rauða hnappinn fram og til baka til að sjá breytingarnar.





Hringdu í okkur eða sendu okkur línu og við gerum þér tilboð að kostnaðarlausu.